Hello there, my old friends! Long time no see maður! Vá, það er
nú frekar langt síðan maður hefur skrifað, og er kannski ástæðan
fyrir því, mikið að gera í vinnu og skóla, og sitthvað fleira.
Biðst innilegrar afsökunar á þessu, og vona að ég bæti mig í þessu
öllu saman. 
Það hefur nú margt og mikið gerst hjá mér síðan eftir áramót,
bæði gott og slæmt, vont og gott. En það er alveg rétt sem er sagt,
að eftir að eitthvað endar, þá byrjar eitthvað nýtt. Hér kem ég með
svona yfirlit yfir það sem hefur gerst hjá mér síðan í janúar:
2. janúar: Ganga frá öllum frábæru gjöfunum sem ég og Eymar
fengum í gjafir saman.
6. janúar: (þrettándinn) 'Eg og Eymar hættum saman. Ekki vilji
minn, bara hans, mikið sjokk, erfiðir dagar og mjög mikil
ástarsorg. 'Aður reyndar lent í sömu stöðu, og með honum einnig,
mjög erfitt tilfinningalega, að lenda aftur í sömu stöðu með sama
manninum. Flutti heim til mömmu og pabba í lítið herbergi inná hjá
þeim, mjög erfitt líka. Mjög erfitt að fara í vinnuna, þar sem
margar minningar voru þar síðan við hættum og byrjuðum síðast
saman. En var sterk, enda búin að upplifa þetta allt áður, og vissi
hvernig ég ætti að díla tilfinningarnar.
1. febrúar: Erfitt að vera uppi á mömmu og pabba komin, þegar
maður hefur verið sjálfstæður einstaklingur og séð um sig sjálfur
og allt það. Pabbi fór með mig að skoða íbúðir. Leist vel á eina,
pabbi gerði tilboð, og næsta dag var búið að samþykkja það. 'Eg
komin með litla tveggja herbergja kósý íbúð! En ákvað að leigja
hana í 5 mánuði, til að safna pening, víst að allt gerðist svona
hratt. Trúði þessu ekki.
18. febrúar: Fékk afhenta lyklana og voða fjör! Fór að íhuga að
flytja í geymsluna niðri, víst ég átti hana nú
Fórum að athuga
parket og svona, og pabbi og afi hjálpuðu mér mjög mikið að
innrétta hana sem flottast.
1. mars: 'Eg flutti inn í geymsluna, og er þar núna. Voða kósý
bara. Keypti mér notað sófasett, 3+2+1, og er niðri með 2ja sæta
sófann, borð, kommóðu, sjónvarp, rúmið og ísskáp. Mjög fínt bara,
og dugir fínt þangað til ég flyt upp í íbúð í júní eða júlí.
Dagurinn í dag: Líðan mín er mjög góð. 'Eg hef ekki EINU sinni
séð Eymar, aldrei séð glitta í hann somewhere, hef sent honum einu
sinni sms um að ég sæki stóra sjónvarpið þegar ég flyt upp í íbúð.
Þetta er algjörlega búið, og ég legg ekki í að fara í þennan pakka
með honum aftur. 'eg óska engum að lenda í þessari sorg sem ég
lenti í, ekki einu sinni, hvað þá tvisvar, og með sama manninum.
'Eg er að vinna hjá Vigni ennþá, er í fjarnámi frá F'A, í ens503 og
Nát103, og gengur ágætlega. Er full tilhlökkunar með allt í mínu
lífi, allt á uppleið, og hlakka bara til að flytja inn í sumar og
geta komið öllu mínu dóti fyrir í MINNI íbúð. Og hlakka lika til að
bjóða öllu þessu góða fólki sem ég þekki. Maður veit ekki hvað
maður á góða að! Þú veist ekki hvað þú átt hefur fyrr en misst
hefur....
Hef þetta ekki lengra... ég sakna ykkar allra sem ég hef ekki
heyrt í lengi!! sérstaklega lúxperanna!! og lúxfamilíen.... sakna
ykkar heví...
hafið það gott þangað til næst.. adios